Gengið til góðs
DSC_3312
Páll Magnússon. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja lítur yfir árið sem nú er að renna sitt skeið í pistli sem birtur er á vef Vestmannaeyjabæjar. Pistilinn má einnig lesa hér að neðan.

Á því ári sem nú er að líða höfum við að flestu leyti ‘’gengið til góðs götuna fram eftir veg’’ hér í Eyjum.

Það hefur staðið yfir gríðarleg uppbygging og framkvæmdir á vegum einstaklinga og fyrirtækja. Þar ber auðvitað hæst glæsilegt landnám nýrrar atvinnugreinar hér í Eyjum –  landeldi á laxi. Þar er á ferðinni stærsta einstaka fjárfesting í sögu Vestmannaeyja. Allt hefur gengið samkvæmt áætlun og nýlega fór fram fyrsta slátrunin hjá Laxey sem skilaði 98% afurðanna í hæsta gæðaflokk.

Sömuleiðis standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir við baðlón og hótel austan við Skansinn sem eiga örugglega eftir að skjóta enn frekari stoðum undir blómlega ferðaþjónustu í bænum. Og ekki má heldur gleyma því að ‘’hefðbundnu’’ fyrirtækin í sjávarútvegi hafa sömuleiðis staðið í margháttuðum endurbótum og framkvæmdum.

Einnig getum við glaðst yfir sterkri fjárhags- og rekstrarstöðu Vestmannaeyjabæjar. Bæjarsjóður er skuldlaus við lánastofnanir og rekinn með afgangi ár eftir ár. Engin lán eru tekin til framkvæmda heldur eru þær fjármagnaðar ‘’upp úr vasanum’’.
Fólksfjölgun er stöðug en hófleg – fjölgað um tæplega 600 frá 2018. Ég segi hófleg því sígandi lukka er best í þessum efnum.

Og gleymum ekki því sem skiptir kannski langmestu máli þegar litið er til framtíðar. Grunnskóli Vestmannaeyja hefur tekið algjöra forystu á landsvísu þegar kemur að menntun barnanna okkar með verkefninu Kveikjum neistann. Verkefnið hefur vakið gríðarlega athygli og nú þegar hefur einn stór skóli, Lindaskóli í Kópavogi ákveðið að fylgja fordæmi GRV.

Að síðustu skulum við svo fagna því sem gerðist núna rétt fyrir jólin: við fengum endanlega staðfest að allar Vestmannaeyjar, ásamt öllum skerjum og dröngum, eru eignarlönd í eigu Eyjamanna sjálfra. Tilraun ríkisins til að slá eign sinni á Vestmannaeyjar var hrundið. Það hefur verið skálað af minna tilefni á gamlárskvöld.

Þannig getum við á þessum tímamótum glaðst yfir flestu af því sem er ekki á okkar valdi, en sannarlega getum við haldið áfram að pirra á okkur á því sem er ekki á okkar valdi: fyrst og fremst samgöngunum. Við öll sem erum í bæjarstjórn gerum allt sem í okkar valdi stendur til að þrýsta á stjórnvöld, þingmenn og ráðherra, til að gera betur. Það væri ósanngjarnt að segja að ekkert hefði gerst – en ekki nógu mikið og ekki nógu hratt.

Á nýju ári verður svo kosin ný bæjarstjórn og verður spennandi að sjá hverjir munu gefa kost á sér, nýir og gamlir!

Ég þakka ykkur öllum fyrir samfylgdina á líðandi ári – og fyrir hönd bæjarstjórnar Vestmannaeyja óska ég ykkur gæfu og gengis á því nýja ári sem brátt gengur í garð.

 

Páll Magnússon
forseti bæjarstjórnar

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.