Gömlu leiktjöldin dregin frá
Nú keppast aðilar nýgerðs kjarasamnings við að dusta rykið af gömlu leiktjöldunum sem sett hafa verið upp við gerð kjarasamninga undanfarinna ára. Leiktjöld sem reyndar gleymdist eitt andartak að draga frá áður en blekið var þornað á nýundirskrifuðum samningum. Hækkanir eru þegar byrjaðar að skella á okkur af fullum þunga. Hver kannast ekki við orðaleppana �??stöðugt verðlag, aukinn kaupmáttur, axla ábyrgð�?? og svo mætti lengi telja.
Sannleikurinn er sá að einu sem axla ábyrgðina eru þeir sem minnst hafa úr að spila í þjóðfélaginu. Við skulum ekki gleyma árangri síðustu þjóðarsáttar sem sést á meðfylgjandi súluriti. �?ar sést að laun og þá kaupmáttur er minnstur á Íslandi af öllum löndum í vestan- og norðanverðri Evrópu:
Gömlu leiktjöldin dregin frá
Nú ætla �??góðu�?? fyrirtækin að draga hækkanir til baka og jafnvel lækka vöruverð á sumum innfluttum vörum. �?au áttu að vera búin að lækka verð fyrir löngu, því krónan hefur styrkst afar mikið á undanförnum mánuðum eins og sést á meðfylgjandi línuriti.
Gömlu leiktjöldin dregin frá
Sumir forhertir aðrir tannlausir
�?nnur fyrirtæki og ríkið sýna sitt rétta andlit, sum forherðast bara og neita að draga hækkanir til baka, og svo eru aðilar líka að setja skilyrði fyrir að draga hækkanir til baka. Notað er sem afsökun fyrir allt að 7% hækkun vöruverðs að innkaupsverð hafi hækkað svo mikið! En þau rök eru ekki sögð duga heimilunum í landinu, innkaupsverð nauðsynja þeirra hafa hækkað afar mikið og sumt mun meira en þessi 7%, svo ekki sé talað um leiguverð, afborganir lána og annað sem til fellur. En það er greinilega ekki sama hvort það er almenningur sem á í hlut eða þeir sem auðinn eiga fyrir, alltaf skulu hagsmunir almennings víkja. Ekki nema von að ástandið sé orðið svona, launþegahreyfingin hefur ekki sýnt tennurnar í áratugi, mætti halda að hún væri orðin tannlaus. Enda hafa rúm 30% þjóðarinnar ekki efni á að leita sér læknis og tannlæknir er munaður handan sjóndeildarhringsins fyrir það fólk.

Hvað tekur nú við?
Af reynslu samninga undanfarinna ára þá mun eftirfarandi gerast fljótlega verði samningurinn samþykktur: Kjararáð úrskurðar alþingismönnum, ráðherrum og öðru hálaunafólki 10-20% launahækkanir. Kennarar og háskólamenntað fólk í vinnu hjá ríkinu mun fá sínar sanngjörnu hækkanir, en þær verða tugum prósenta yfir okkar. Heimsmarkaðsverð á ýmsum vörum mun hækka sem leiðir til �??óhjákvæmilegrar hækkunar�?? á vörum og þjónustu. En við verðum föst inni okkar samningi í eitt ár og búið að gefa út veiðileyfi á peningaveskin okkar, því búið verður að draga leiktjöldin fyrir.

Hjarðhegðunin
�?rátt fyrir að aðilar samningsins hafi vitað að eigin sögn að verðlagsforsendur myndu ekki standast eins og lagt var upp í samningnum var skrifað undir. �?rátt fyrir að þeir sem minnst hafa fyrir, fái minnst út úr samningnum var skrifað undir. �?rátt fyrir að þetta þýði áfram aukið launamisrétti milli karla og kvenna var samt skrifað undir. �?að fór í gang gamalkunnug hjarðhegðun hjá aðilum vinnumarkaðarins sem tryggir að við munum halda áfram að verða með einna lægstu laun í Evrópu hér á Íslandi. En þeir sem taka sig út úr hjörðinni og segja sannleikann eru kallaðir lýðskrumarar.

�?að er aðeins ein leið til að fyrirbyggja þetta. Sýna ábyrga afstöðu og fella samninginn.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.