Grunnskólinn settur – Kveikjum neistann megin stefið
Mikill fjöldi nemenda og foreldra var viðstaddur skólasetninguna enda GRV stærsti vinnustaðurinn í Vestmannaeyjum. Myndir Óskar Pétur.

Nemendur í Grunnskóla Vestmmannaeyja eru samtals 534 og kennarar og annað starfsfólk telur 122, samtals 656 sem gerir Grunnskólann að særsta vinnustað í Vestmannaeyjum. Þar af eru í Hamarsskóla 180 nemendur og starfsmannafjöldi 52. Þar eru 52 nemendur og 14 starfsmenn á fimm ára deildinni og 74 nemendur og tíu starfsmenn á frístund. Í Barnaskólanum eru 354 nemendur og starfsmenn 70. Þetta kom fram á setningu Grunnskólans í Íþróttamiðstöðinni í gær, föstudaginn 22. ágúst.

 

Anna Rós: Fyrir starfsfólkið okkar er þetta stund til að hefja aftur það mikilvæga hlutverk sem felst í að leiða, hvetja og efla unga fólkið okkar.

Tilhlökkun á nýju skólaári

„Það er alltaf ákveðin tilhlökkun að hefja nýtt skólaár. Fyrir nemendur er þetta stund til að hitta vini, sjá ný andlit og takast á við ný verkefni. Fyrir foreldra er þetta stund til að fylgjast með börnunum vaxa og dafna. Fyrir starfsfólkið okkar er þetta stund til að hefja aftur það mikilvæga hlutverk sem felst í að leiða, hvetja og efla unga fólkið okkar,“ sagði Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri Hamarsskóla þegar Grunnskóli Vestmannaeyja var settur í gær.

Í fyrra var GRV skipt í Barnaskóla og Hamarsskóla og stýrir Einar Gunnarsson Barnaskólanum þar sem eru börn í fimmta upp í tíunda bekk. „Fyrsta skólaár með skólana í tveimur einingum hefur gengið vel og höfum við öðlast reynslu sem nýtist á komandi skólaári. Við stefnum á áframhaldandi samstarf milli skóla og teljum mjög mikilvægt að halda áfram í þá hluti sem gerir okkur að sterkri liðsheild,“ sagði Anna Rós og benti á að þó Kveikjum neistann sé leiðarstefið snúist skólinn ekki bara um bóklegt nám.

Hugarfar, ástríða, hreyfing og félagsleg tengsl

„Hann snýst líka um hugarfar, ástríðu, hreyfingu og félagsleg tengsl. Við viljum að þið nemendur lærið að takast á við áskoranir, sýnið úthald og seiglu þegar eitthvað er erfitt. Við viljum að þið séuð glöð ef þið náið ykkar markmiðum og hafið trú á því að þið getið náð þeim. Það er líka mikilvægt að læra að gleðjast yfir árangri annarra, það gerir okkur að betra liði,“ sagði Anna Rós og ávarpaði næst nemendur og foreldra.

„Kæru nemendur – þið eruð ástæðan fyrir því að við erum hér. Ég vil hvetja ykkur til að taka nýja skólaárið með opnum hug. Ekki vera hrædd við að gera mistök – þau eru hluti af náminu. Spyrjið spurninga, leyfið ykkur að vera forvitin, og munið að hver dagur í skólanum er tækifæri til að læra eitthvað nýtt.

Kæru foreldrar– samstarf við ykkur er ómetanlegt. Þið eruð helsti stuðningur barnanna ykkar, og þegar heimili og skóli ganga í takt, verða árangurinn og líðan barnanna mun betri. Við hlökkum til að eiga áfram gott samstarf við ykkur og biðjum ykkur að halda áfram að sýna áhuga, fylgjast með og hvetja börnin á leið þeirra í gegnum skólagönguna.

Kæra starfsfólk – þið vitið best hversu mikilvæg störf ykkar eru. Það er ekki lítið hlutverk að hafa áhrif á líf og framtíð barna og ungmenna. Það krefst fagmennsku, ástríðu og mikils úthalds. Ég vil þakka ykkur öllum fyrir þann metnað og þann eldmóð sem þið sýnið í starfi ykkar. Það er ykkar kraftur sem gerir skólann að þeim stað sem hann er,“ sagði Anna Rós.

 

Einar: Með þessu kveikjum við fleiri neista, sem vonandi leiðir til þess nemendur okkar finna gleði í að læra, forvitnast og sjá heiminn í nýju ljósi.

 

Trú á eigin getu og vilji til að hjálpast að

„Undanfarin ár höfum við lagt mikla áherslu á verkefnið Kveikjum neistann. Á síðasta skólaári voru allir árgangar Hamarsskóla að starfa eftir hugmyndafræðinni og í vetur ætlum við að halda áfram að þróa Kveikjum neistann við Barnaskólann. Í Barnaskólanum hefur starfsfólkið undirbúið sig vel til að taka á móti nýjum nemendum 5. bekkja og munu halda áfram að efla og þróa Kveikjum neistann,“ sagði Einar, skólastjóri Barnaskólans.

„Í þessu ljósi vil ég nefna að síðastliðin ár höfum við í Barnaskólanum verið með þjálfunartíma og ástríðutíma á miðstiginu til að undirbúa okkur fyrir Kveikjum neistann. Verðandi 5. bekkur mun að sjálfsögðu halda áfram að vinna eftir hugmyndafræðinni og 6. bekkur mun einnig taka inn margt úr hugmyndafræðinni sem þýðir m.a. að stundaskrá 6. bekkjar tekur að hluta til mið af Kveikjum neistann.

Með þessu kveikjum við fleiri neista, sem vonandi leiðir til þess nemendur okkar finna gleði í að læra, forvitnast og sjá heiminn í nýju ljósi,“ sagði Einar bætti við að fram undan er nýr vetur, nýjar áskoranir og ný tækifæri.

Standa saman sem samfélag

„Við munum standa saman sem samfélag, styðja hvert annað, gleðjast saman og leysa verkefnin sem mæta okkur. Ég er sannfærður um að ef við göngum öll inn í þetta skólaár með jákvæðu hugarfari, trú á eigin getu og vilja til að hjálpast að, þá verður þetta skólaár eftirminnilegt.

Við lýsum hér með skólaárið í Grunnskóla Vestmannaeyja formlega hafið. Megi það verða ár lærdóms, vináttu og vaxandi sjálfstrausts fyrir nemendur okkar – og ár stolts og ánægju fyrir okkur öll sem tilheyrum skólasamfélaginu. Takk fyrir, og gangi ykkur öllum vel í vetur,“ sagði Einar.

Í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út á fimmtudaginn 28. ágúst er ítarleg umfjöllun um skólamál í Vestmannaeyjum og Kveikjum neistann sem er ljósið í myrkrinu í íslenska skólakerfinu sem skorar ekki hátt í alþjóðlegum samanburði.

 

Hefð er fyrir því að Jarl stjórni söng þegar Skólasöngur GRV er sunginn á setningu skólans.

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.