Guðrún Hafsteinsdóttir boðar til fundar
Guðrún Hafsteinsdóttir.

Guðrún Hafsteinsdóttir hefur boðað til fundar um næstu helgi, en skorað hefur verið á hana að undanförnu að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Í tilkynningu frá Guðrúnu segir að hún telji rétt að taka samtal við flokksfélaga sína og boðar þá til fundar í Salnum í Kópavogi á laugardaginn kemur.

Tilkynning Guðrúnar í heild sinni:

Nú styttist óðum í að sjálfstæðismenn komi saman á landsfundi til að skerpa á stefnu flokksins og velja sér nýja forystu. Þar munum við ræða um framtíðina, frelsi einstaklingsins og hvernig við tryggjum sterkt og frjálst samfélag til hagsbóta fyrir alla landsmenn.

Fyrir fjórum árum, eftir áratuga starf í atvinnulífinu, fann ég köllun til að bjóða fram krafta mína í þeirri viðleitni að móta íslenskt samfélag. Sú vegferð hefur verið krefjandi, lærdómsrík og gefandi. Ég hef notið hverrar stundar og hef lagt mig fram um að standa vörð um þau grunngildi sem við sjálfstæðismenn trúum á – frelsi, jafnrétti og rétt einstaklinga til að nýta krafta sína til fulls.

Á þessum tímamótum í Sjálfstæðisflokknum tel ég rétt að taka samtal við flokksfélaga mína og boða ég til fundar í Salnum í Kópavogi á laugardaginn kemur, 8 febrúar, klukkan 14:00.

 

Guðrún Hafsteinsdóttir

 

 

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.