Vestmannaeyjabær fær hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í ár. Styrkurinn rennur til uppbyggingar á Eldfelli. Alls fara um 107 milljónir króna í gerð göngustíga og trappa sem tengjast listaverkinu Sjónarhorn flakkarans, með það að markmiði að bæta öryggi gesta og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi.
Úthlutunin er hluti af heildarpakka upp á nærri 490 milljónir króna til verkefna um allt land, þar sem sérstök áhersla er lögð á öryggi á ferðamannastöðum. Lesa má tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins í heild sinni hér að neðan.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í dag til 18 verkefna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkja nemur nær 490 milljónum króna sem dreifast til verkefna víðsvegar um landið.
Sérstök áhersla var lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni og tók gæðamat sjóðsins mið af þeirri áherslu.
„Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda, heldur sameiginlegt verkefni okkar allra sem vinnum að málefnum ferðaþjónustunnar“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Stórbrotin náttúra Íslands heillar vissulega en hún getur líka verið óvægin. Eitt af hlutverkum Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er því að tryggja öryggi gesta“.
Hæsti styrkur úr sjóðnum í ár fer til Vestmannaeyjabæjar vegna gerð göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer‘s Perspective). Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja öryggi ferðamanna og vernda viðkvæma náttúru svæðisins en um leið minnast eldgossins á Heimaey 1973.
Markmið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.
Eftirfarandi verkefni hljóta styrk úr sjóðnum í ár:
Áhugamannafélög
Fyrirtæki
Landeigandi/landeigendafélög
Sveitarfélög