Hagsmunasamband stjórnenda
10. október, 2021
Vestmannaeyjahöfn.

Ég hef rekið mig á það að margt hefur breyst í verkalýðs- og hagsmunamálum á Íslandi síðustu áratugi. Þegar ég var að alast upp var Guðmundur Jaki áberandi persóna á sjónarsviðinu og sjálfsagt ekki að ósekju. Það var annar taktur í þjóðfélaginu þá. Atvinnuleysi og verðbólga algengt fyrirbæri sem lagðist helst á hina vinnandi stétt. Það var verkalýðurinn í landinu sem borgaði yfirleitt brúsann að lokum.

Nú á tímum er landslagið orðið annað. Flestir sem ég kannast við semja orðið sjálfir um eigin laun og fyrirtæki eru í stöðugri samkeppni um besta vinnuaflið. Það er vissulega kærkomin breyting frá því að vinna á strípuðum töxtum eins og tíðkaðist. Það tel ég vera breytingu til batnaðar að stór hluti vinnuaflsins skuli vera sjálfráður í eigin launamálum. Nýlega hóf ég störf hjá Sambandi stjórnendafélaga (STF) sem áður hét Verkstjórasamband Íslands. Það sem vekur athygli mína er að þegar maður ræðir verkalýðs- eða félagsstörf í dag við yngra fólk að þá ranghvolfir það augunum. En því miður er það þannig að þú tryggir ekki eftir á. Þó að stjórnendur standi einhvers staðar á milli fyrirtækis og almennra starfsmanna þá þarf stjórnandinn ekki að fyrirgera rétti sínum til að eiga rétt á sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sem undirmenn þeirra fá í sínum stéttarfélögum. Það er of dýru verði keypt.

En til að gera langa sögu stutta að þá er STF; samband stjórnendafélaga sem gætir hagsmuna félagsmanna í ellefu aðildarfélögum sambandsins um allt land. STF er einskonar regnhlífarsamband fyrir þessi ellefu aðildarfélög. Félagsmenn okkar eru aðallega fólk sem semur sjálft um sín eigin laun. Við höfum verkfallsrétt en höfum aldrei beitt honum. Við hjá STF gerum reglulega launakannanir sem styðja við kröfur félagsmanna varðandi laun þeirra eftir fagi. Þess má geta að við gerum kjarasamninga fyrir okkar félagsmenn. Eins höfum við aðstoðað félagsmenn við gerð ráðningarsamninga. Okkar sérstaða er gríðarsterkur sjúkrasjóður sem grípur félagsmanninn í veikindum sínum (launavernd) eða barns undir 18 ára. Við bjóðum upp á ríkulega styrki til menntunar og heilsu. Einnig bjóðum við upp á fín sumarhús víðs vegar um landið og leigu á hjólhýsum yfir sumartímann.

Ég er vandvirkur og varkár maður. Þegar ég tók við starfi kynningarfulltrúa STF vildi ég gera ánægjukönnun hjá okkar félagsmönnum til að vera þess viss að ég væri ekki að selja gallaða eða skemmda vöru. Við fengum til liðs við okkur margreynt ráðgjafafyrirtæki sem hefur gert mikið af könnunum fyrir helstu fyrirtæki landsins. Félagsmenn okkar voru spurðir um þjónustu STF; þjónustuveri, orlofskostum, sjúkrasjóði, stjórnendanámi og menntasjóði voru gefin einkunn. Einnig var spurt hversu líklegt eða ólíklegt væri að þú mæltir með STF við vin eða vinnufélaga (NPS kvarði). Niðurstöðurnar voru þessu ágæta ráðgjafafyrirtæki ráðgáta, því STF og aðildarfélög þess fengu svo góða einkunn í skoðanakönnuninni að það skákar bestu fyrirtækjum landsins. NPS kvarðinn er 200 stiga kvarði sem nær frá -100 stigum til 100 stiga. Meðaltalsskor fyrirtækja á Íslandi er -14 stig. Fremstu fyrirtæki heims eru með 50-70 stig í einkunn. En STF er að fá 48 stig sem er í raun 148 stig af 200 mögulegum. Það verður að teljast frábær einkunn.

Ég hef því í raun komist að því að ég er ekki að selja skemmda eða gallaða vöru heldur þvert á móti framúrskarandi afurð. Því vil ég hvetja alla þá sem vilja njóta góðrar þjónustu og kjara að skoða hvort aðild að stjórnendafélagi sé ekki rökrétt skref inn í þeirra framtíð. Þeir sem semja sjálfir um eigin laun,  starfsfólk án mannaforráða í sértækum verkefnum eða stjórnendur (vaktstjóri, verslunarstjóri, bílstjóri, deildarstjóri, verkstjóri, tæknistjóri, mannauðsstjóri, liðsstjóri o.s.frv) eru gjaldgengir í stjórnendafélag. Viljir þú kanna málið betur bendi ég á stf.is eða að hafa samband við Verkstjóra og stjórnendafélag Vestmannaeyja.

Eyþór Óli Frímannsson
Höf. er kynningar- og menntafulltrúi STF

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.