Heilbrigðismál
Trausti Hjaltason

Aðsend grein

Trausti Hjaltason

Á HSU í Vestmannaeyjum starfar mikið af reynslu miklu fólki með hina ýmsu sérþekkingu. Starfsemin er öflug og gríðarlega mikilvæg fyrir okkar frábæra samfélag.

Málefni sjúkrahússins og hjúkrunarheimilisins eru ekki á könnu sveitarfélagsins en það þýðir ekki að bæjarstjórn megi sofna á verðinum í hagsmunagæslu.

Eftir að almennt flug lagðist af í Vestmannaeyjum hefur sjúkraflug aukist. Ekki er lengur hægt að senda sjúklinga í dagsferð í rannsóknir eða minniháttar aðgerðir nema með því að kalla út sjúkraflug með tilheyrandi kostnaði og bið. Einnig seinkar oft vinnslu á sýnum eða lyfjagjöfum vegna tafa í flutning.

Hér stendur ónotuð skurðstofa og við gætum nýtt allt okkar frábæra starfsfólk til að sinna fjölbreyttari verkefnum ef að fjármagn væri nægjanlegt og það væri ekki óskrifuð stefna í heilbrigðismálum að færa alla þjónustu á höfuðborgarsvæðið.

Við þurfum að vera í góðu samstarfi við stjórn HSU og þingmennina okkar um stöðuna í heilbrigðismálum í Vestmannaeyjum og megum aldrei sofna á verðinum.

 

Trausti Hjaltason

Sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 13. mars nk.

 

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.