Heitar umræður um virkjanir í �?jórsá

Bjarni sagði á fundinum að hverfa eigi frá virkjanaframkvæmdum verði því komið við en Guðni Ágústsson, oddviti framsóknarmanna, vill halda áfram með virkjunaráform í ánni. Bjarni segir mikilvægt að verði af framkvæmdum þá verði farin leið sátta og samninga.
Á fundinum kom fram að Landsvirkjun heldur áfram að undirbúa þrjár virkjanir í �?jórsá. Landeigendum og Landsvirkjun ber ekki saman um hvernig samningum þeirra á milli miðar, eða hvort þeim miðar yfirleitt nokkuð. Frambjóðendur flokkanna voru þá spurðir hvort eignarnám kæmi til greina og voru þeir andvígir því. Árni Mathiesen sagði að eignarnámstal væri ekki uppi á borðinu. Hann sagði að því hefði verið fleygt fram af öðrum en sjálfstæðismönnum til að gera málið tortryggilegt.

Margir gesta fundarins stóðu upp til að bera fram spurningar, eða tjá sig um virkjanaframkvæmdinar. Nokkrir fundarmenn höfðu áhyggjur af jarðveginum í botni fyrirhugaðs lóns. �?jórsárhraunið væri mjög sprungið og vatnið í lóninu gæti komið upp undan undan hrauninu á stöðum sem ógnuðu mannvirkjum og búfénaði. Á jarðskjálftasvæði eins og þessu gætu nýjar sprungur myndast eins og gerði í Suðurlandsskjálftunum árið 2000. Fjármálaráðherra sagði að rannsóknir hefðu verið gerðar á hrauninu en hann væri tilbúinn til að endurskoða þær ef hætta væri talin á ferðum vegna þessa.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.