„Ég var eiginlega alveg viss um að hásinin hefði slitnað og að tímabilið væri búið hjá mér en sem betur fer reyndist svo ekki. Það opnaðist skurður fyrir ofan hásinina og ég var saumaður með fjórum sporum strax eftir leikinn og ég er bjartsýnn á að geta spilað á Wembley á laugardaginn og ætla mér það,“ sagði Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, við Morgunblaðið í gær.