Herjólfur að leggja af stað heim eftir slipptöku
Herjolfur 1 1068x712 1 2
Herjólfur er lagður af stað til Eyja.

Herjólfur leggur senn af stað úr Hafnarfjarðarhöfn eftir þriggja vikna slipp. Fréttin er skrifuð kl. 0.30 og var þá verið að gera klárt til brottfarar. Að sögn​ Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs gekk vinnan í slippnum mjög vel og komist​ var yfir ótrúlega mörg verkefni sem þörfnuðust viðhalds. „Í svona skip​i eru svo ótrúlega mikið af hlutum, vélum og búnaði sem þarf að skoða, stórum sem smáum og allt á að vera í fullkomnu lagi.

Aðspurður um hvernig hefði gengið að koma skipinu niður í dag sagði Ólafur að í morgun, þegar verið var að setja skipið á flot kom í ljós að það þurfti að vinna frekar í kælibúnaði skipsins og var því skipinu aftur lyft og gert við það sem þurfti að laga auk þess sem hver einasta mínúta var nýtt til þess að mála, og var lokið við að mála nú skömmu fyrir brottför skipsins.

„Herjólfur er áætlaður við bryggju í Eyjum snemma í fyrramálið og verður morgundagurinn nýttur í ýmislegt tilstand eins og til dæmis að gera kojusalinn kláran. Því mun Baldur sjá um áætlunarsiglingar á morgun og Herjólfur kemur í áætlun á mánudagsmorgun. ​Ég vil nota tækifærið og þakka Baldursfólkinu öllu fyrir framúrskarandi þjónustu við okkur Eyjamenn, þau hafa staðið sig frábærlega í oft krefjandi aðstæðum, sérstaklega síðustu dagana​,” segir Ólafur að lokum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.