„Höfum mikla trú á þessari vinnu“
segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
Lokaskildabod Kristrunar I Idno Cr
Kristrún Frostadóttir

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri þann 28. febrúar. Hópinn skipa Björn Ingi Victorsson formaður, sem er endurskoðandi og forstjóri Steypustöðvarinnar, Gylfi Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum og fyrrverandi yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB) sem áður var deildarstjóri hjá Valitor.

Hagræðingarhópurinn hefur þegar tekið til starfa. Hópurinn mun m.a. vinna úr samráði ríkisstjórnar við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri sem lýkur í dag. Einnig verður litið til fyrri úttekta sem til eru um sama efni auk ábendinga frá forstöðumönnum hjá ríkinu og ráðuneytum, segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Gert er ráð fyrir að tillögum verði skilað þann 28. febrúar og að einhverjar þeirra muni nýtast strax í vor en að fjármálaáætlun muni einnig taka mið af vinnu hópsins.

„Ég vil þakka þjóðinni fyrir áhugann og aðstoðina í samráðinu. Við í ríkisstjórninni höfum mikla trú á þessari vinnu og hlökkum til að fá í hendur tillögur hagræðingarhópsins. Þetta er öflugur hópur með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og opinberum rekstri,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í tilefni af skipun hópsins.

Björn Ingi Victorsson verður formaður hagræðingarhópsins og talsmaður þó að ekki sé gert ráð fyrir að hópurinn sýni á spilin fyrr en niðurstöðum verður skilað. „Ég er fyrst og fremst rekstrarmaður og kem inn í þetta sem slíkur en mér líst mjög vel á verkefnið og nálgun nýrrar ríkisstjórnar. Það eru víða tækifæri til að gera betur og við hlökkum til að taka þennan sprett,“ segir Björn.

Nýjustu fréttir

Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.