Hvað má í sóttkví?

Nú þegar þeim fjölgar ört sem settir eru í sóttkví í Vestmannaeyjum og í gærkvöldu voru þeir orðnir rúmlega 100. Ekki er víst að allir átti sig á hvað það þýðir að vera í sóttkví. Hvað má og hvað má ekki. Hér að neðan má lesa nokkra góða punkta um það.

Sóttkví á heimilum

Oftast er fólk í sóttkví á heimili sínu þá þarf að huga að ýmsu. Ef fleiri búa á heimilinu þarf að skipuleggja hlutina vel. Sá sem er í sóttkví þarf að:

  • Takmarka umgengni við aðra heimilismenn eins og mögulega er hægt.
  • Hafa alltaf 2 metra í næsta mann.
  • Heimilismenn sem ekki eru í sóttkví gætu mögulega fengið að dvelja hjá vinum eða vandamönnum á meðan sóttkvíin gildir.
  • Ef fleiri en einn eru í sóttkví á sama heimili sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta þeir verið saman í sóttkví.
  • Dvelja mest í einu herbergi íbúðar ef fleiri eru á heimilinu sem ekki eru í sóttkví.
  • Snerta sem allra minnst aðra staði í íbúðinni. Sótthreinsa þarf alla sameiginlega snertifleti eftir að sá sem sætir sóttkví hefur snert þá.
  • Ef tvö salerni eru í íbúðinni er gott að sá í sóttkví noti annað og hinir hitt salernið.
  • Ef aðeins eitt salerni er í íbúðinn þarf að sótthreinsa alla snertifleti á því eftir að sá í sóttkví hefur notað það.
  • Gæta sérstakrar varúðar þegar hann fer úr herberginu og gæta þess að hafa alltaf 2 metra á milli sín og annarra
  • Gæta vel að handhreinsun, sér í lagi þegar sameiginleg rýni íbúðar eru notuð eða óhjákvæmilegt er að hafa samskipti við aðra
  • Mæla líkamshita sinn daglega og skrá.
  • Ef einkenni gera vart við sig þarf að hafa samband við heilsugæsluna næsta virka dag og láta vita. Það má gera á mínum síðum Heilsuveru. Mikilvægt er að geta um sóttkvína.

Ungt barn í sóttkví

Ef ungt barn er sett í sóttkví þarf sá fullorðni einstaklingur sem annast barnið að vera í sóttkví með því. Það gildir þá það sama um þann einstakling og aðra sem þurfa að sæta sóttkví. Barnið og umönnunaraðili þess geta þá deildt herbergi en ekki með öðrum í fjölskyldunni.

Einstaklingur í sóttkví má EKKI

  • Fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, s.s. til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Við slíkar aðstæður skal hafa samband við heilsugæslu, Læknavakt í síma 1700 utan opnunartíma heilsugæslunnar eða við 112 í neyð og taka í öllum tilvikum fram að sóttkví sé í gildi.
  • Nota almenningssamgöngur eða leigubíla. Sjá leiðbeiningar um ferðir innanlands í sóttkví.
  • Fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru.
  • Fara á mannamót, hvort sem þau varða starf hans, fjölskyldu eða félagslíf.
  • Fara á líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, í leikhús, kvikmyndahús, verslunarmiðstöðvar eða aðra staði þar sem margir koma saman.
  • Fara sjálfir eftir aðföngum, þ. á m. í apótek, matvöruverslun, pósthús, banka eða annað.
  • Dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa, s.s. stigagöngum, þvottahúsum eða sameiginlegum görðum/útivistarsvæðum. Ef farið er út er best að nota hanska á hendur og snerta sem minnst alla fleti.
  • Taka á móti gestum á heimili sínu meðan sóttkví stendur yfir.

Einstaklingur í sóttkví MÁ

  • Fara út á svalir eða í garð við heimilið. Ef aðrir eru þar líka þarf sá sem er í sóttkví að halda sig í a.m.k. 2 m fjarlægð.
  • Fara í gönguferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 2 m fjarlægð frá öðrum vegfarendum.
  • Fara í bíltúr á einkabíl en ekki má eiga samskipti við aðra í návígi s.s. við bílalúgur veitingastaða.
  • Fara út með heimilissorp en huga þarf vel að hreinlæti, sinna handhreinsun fyrir og eftir opnun sorprennu/ruslatunnu/ruslageymslu og gjarnan strjúka yfir handföng með 70% spritti eða öðru sótthreinsandi efni eftir snertingu.

Hvar er hjálp að fá?

  • Rauði krossinn getur aðstoðað við aðföng ef þörf er á
  • Netspjallið á heilsuvera.is getur svarað spurningum ef eitthvað er óljóst
  • Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er gjaldfrjálst númer opið öllum á Íslandi sem á þurfa að halda.

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.