Körfuknattleikslið ÍBV lék í gær gegn Hrunamönnum í undanúrslitum 2. deildar en sigurvegari leiksins tryggði sér um leið sæti í 1. deild að ári. Ljóst var að leikurinn yrði Eyjamönnum erfiður en Hrunamenn urðu efstir í A-riðli og fengu því heimaleik. Lokatölur urðu hins vegar 79:75 þannig að tæpara mátti það varla vera.