ÍBV og Afturelding skildu jöfn
Hermann Þór Ragnarsson gegn Afureldingu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Aftureldingu á Hásteinsvelli í 23. umferð Bestu deildar karla í dag. Þetta var fyrsti leikur eftir skiptingu deildarinnar. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. 

Eyjamenn voru með yfirhöndina allan leikinn og fengu góð færi í fyrri hálfleik til að komast yfir. Markvörður Aftureldingar átti góðan leik og sá til þess að staðan væri 0-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var svipaður og sá fyrri. Það voru Eyjamenn sem sóttu meira og komust oft á tíðum í mjög góðar stöður. Þegar seinni hálfleikur var um það bil hálfnaður fengu Eyjamenn aukaspyrnu töluvert fyrir utan teig Aftureldingar. Fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum í hornið. 1-0 fyrir ÍBV. Eyjamenn hefðu getað bætt við og lokað leiknum en inn vildi boltinn ekki. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka fékk Afturelding aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Aron Jóhannsson tók spyrnuna og setti boltann í netið fram hjá Marcel í marki ÍBV. Lokatölur leiksins 1-1.

Eftir leikinn eru Eyjamenn komnir með 30 stig, tveimur stigum á eftir KA sem sigraði KR fyrir norðan 4-2.  Afturelding eru áfram neðstir með 22 stig, þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni. ÍA vann þá öruggan 4-0 sigur á Vestra í gær.

Eyjamenn fara næst vestur og spila gegn Vestra laugardaginn 27. september kl. 14:00.

Nýjustu fréttir

Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.