ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld
Eyjamenn hafa aðeins tapað einum af síðustu fimm leikjum sínum og geta færst nær efri hluta deildarinnar með góðum úrslitum í Kópavogi
Arnór Ingi Kristinsson í baráttu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV mætir Breiðabliki á Eikarvellinum í Kópavogi í Bestu deild karla í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18:00.

Eyjamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 15 leiki. Breiðablik situr í fjórða sæti með 26 stig og hefur því tíu stiga forskot á ÍBV. Liðin hafa bæði leikið einum leik færra en flest önnur lið deildarinnar.

ÍBV hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm leikjum sínum, unnið tvo og gert tvö jafntefli. Breiðablik hefur á sama tímabili unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum.

Leikurinn skiptir Eyjamenn miklu máli í þéttri baráttu um miðja deild. Aðeins þrjú stig skilja ÍBV í áttunda sæti og Val og Keflavík, sem eru jöfn með 19 stig í fimmta og sjötta sæti.

Tveir leikir fara fram í Bestu deild karla í kvöld. Auk viðureignar Breiðabliks og ÍBV mætast KA og Þór í Akureyrarslag á Greifavellinum klukkan 19:15.

Leikir kvöldsins:

  • Kl. 18:00: Breiðablik – ÍBV á Eikarvellinum
  • Kl. 19:15: KA – Þór á Greifavellinum

Nýjustu fréttir

Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.