ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Kópavogsvelli
Úr fyrri leik liðanna á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Breiðablik mættust í 16. umferð Bestu deildar karla á Kópavogsvelli í kvöld. Leikurinn endaði með 1-0 sigri heimamanna. 

Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina í upphafi leiks. Viggó Valgeirsson var nálægt því að koma ÍBV yfir eftir hálftíma leik þegar hann átti skalla í stöngina. Blikar unnu sig vel inn í leikinn og áttu meðal annars skot í slá. Markalaust í hálfleik. 

Breiðablik braut ísinn snemma í síðari hálfleik þegar Ágúst Orri Þorsteinsson fékk boltann í þröngu færi inn á teig ÍBV. Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður Eyjamanna, varði skot hans í fyrstu tilraun en Ágúst fylgdi sjálfur á eftir skotinu og setti boltann örugglega í netið. 

Pisco komst næst því að jafna leikinn fyrir Eyjamann þegar tæpar fimmtán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Hermann Þór Ragnarsson átti þá góða sendingu á Pisco inn á teig Breiðabliks en skot hans rétt framhjá markinu. Lokatölur leiksins 1-0.

Eyjamenn eru, eftir 16 leiki, í áttunda sæti með 16 stig. Blikar sitja í fjórða sæti með 29 stig. 

Breiðablik 1 – 0 ÍBV

1-0 Ágúst Orri Þorsteinsson (’51 )

Staðan í deildinni

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.