Ísland og Færeyjar semja um fiskveiðihagsmuni
Sild Fra Faereyjum Mynd
Eins og áður munu bæði ríki hafa heimild til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld í lögsögum hvors annars.

Ísland og Færeyjar hafa náð samkomulagi um fiskveiðar fyrir árið 2025. Ríkin semja um skiptingu fiskveiðihagsmuna til eins árs í senn innan rammasamnings sem undirritaður var af utanríkisráðherrum ríkjanna í október 2022.

Á ársfundi ríkjanna sem fór fram föstudaginn 6. desember var ákveðið að endurtaka fyrirkomulag skiptinga frá fyrri árum. Eins og áður munu bæði ríki hafa heimild til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld í lögsögum hvors annars. Færeysk skip fá enn fremur leyfi til veiða á 5.600 tonnum af botnfiski á Íslandsmiðum. Einnig úthlutun loðnu ef kvóti verður gefinn út til veiða á loðnu, Ísland fær að auki heimild til veiða á 1.300 tonnum af makríl í færeyskri lögsögu, segir í tilkynningu Matvælaráðuneytisins.

Nýjustu fréttir

Eyjakona og drottning íslenskrar knattspyrnu
Bæjarstjórnarfundur í beinni
Andri Erlingsson til Kristianstad
Verulegur munur á tilboðum í flóðlýsingu Hásteinsvallar
Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.