Jólahvíslið í kvöld
Hópurinn sem kemur að tónleikunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

„Hugsunin með Jólahvísli er að allir geti komið á jólatónleika óháð fjárhag og þess vegna er frítt inn, við elskum þennan tíma, aðventuna og jólin. Boðskapur jólanna er það besta sem okkur öllum hefur verið gefið. Jesús kom með von, frið og frelsi sem varir enn,” segir Helgi Tórshamar í samtali við Eyjafréttir en í kvöld verður boðið upp á Jólahvísl í áttunda sinn í Hvítasunnukirkjunni.

„Fyrsta Hvíslið var haldið þann 22. desember 2016 svo þetta eru áttundu tónleikarnir, við þurftum að sleppa þeim einu sinni út af dálitlu,” segir Helgi.

Spurður hvort tónleikarnir í kvöld verði með svipuðu sniði og undanfarin ár, svarar Helgi því játandi. „Þetta eru lágstefndir tónleikar, ljúfir og þægilegir, gefa frið og ró í hug og hjarta. Tuttugu manns hafa komið að undirbúningi, fimm í hljómsveit, átta söngvarar og allskonar hjálparhellur sem við erum óendanlega þakklát fyrir. Við hlökkum til að sjá ykkur öll og við óskum ykkur gleðilegra jóla. Þetta er gjöf frá okkur til ykkar. Við viljum góðfúslega benda á styrktarsjóð Landakirkju fyrir þau sem vilja láta gott af sér leiða á tónleikunum. Tekið verður á móti framlögum og einnig hægt að millifæra á  rn: 0133-15-00759 Kt: 630321-0340.”

Óskar Pétur Friðriksson leit við á æfingu hópsins í gærkvöldi. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.30 í Hvítasunnukirkjunni.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.