Jóna Gréta hjá verslun GÞ
Mjúk og góð rúmföt slá alltaf í gegn
Jóna Gréta hjá verslun GÞ.

Eyjafréttir hafa síðustu misseri verið á ferðinni í verslunum bæjarins, skoðað úrvalið og rætt við kaupmenn um vinsælustu gjafavörurnar í aðdraganda jólanna. Við heyrðum í Jónu Grétu hjá verslun GÞ, sem býður upp á fjölbreytt og vandað úrval fyrir jólin. 

Aðspurð hver sé vinsælasta gjafavaran um þessar mundir segir Jóna það án efa vera rúmfötin.  

„Líkt og oft áður eru það rúmfötin sem eru vinsælust í jólapakkana. Fyrir þá sem eiga allt mæli ég með góðum og mjúkum rúmfötum, eða gjafabréfi þannig að fólk geti valið sér sjálft. Einnig eru sængur og koddar góð og vinsæl gjafavara ásamt náttfatnaði og sloppum.“ 

Hún segir jólaverslunina hafa farið vel af stað og að þau séu afar þakklát fyrir það. Að hennar mati sé þetta alltaf ákaflega skemmtilegur tími í verslunarrekstri og segir tímann verða enn skemmtilegri þegar jólasveinarnir fari að laumast að finna eitthvað sniðugt handa börnunum í skóinn, enda nóg til af sniðugu í versluninni. Hún telur jafnframt að fólk sé almennt fyrr á ferðinni en áður með jólainnkaupin, sem lengi þennan tíma. 

Verslunin er þekkt fyrir fjölbreytt úrval sem henti breiðum aldurshópi. Meðal annars má finna gjafavöru merkt liðum í enska boltanum en það úrval fer sífellt stækkandi. Ilmkerti og híbýlailmir njóta einnig mikilla vinsælda, ásamt demantsmyndunum sem hafa slegið í gegn. Þá er þar að auki að finna gott og fjölbreytt úrval fyrir hannyrðafólk. 

Aðspurð hvað Jónu þyki skipta mestu máli í vali á gjöfum telur hún mikilvægasta þáttinn vera að velja gjöf út frá einstaklingnum sem á að fá hana, það sé alltaf gaman að hitta í mark, en leggur þó áherslu á að hugurinn á bak við gjöfina skipti alltaf mestu máli. 

Að lokum vill Jóna óska öllum gleðilegra jóla.  

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.