Haustið 2021 auglýsti Vestmannaeyjabær eftir tillögum að uppbyggingu aðstöðu til sjósunds í Klaufinni/Höfðavík. Arkítektafyrirtækið Undra ehf., var eina fyrirtækið sem sendi inn tillögu. Málið far til umræðu á fundi bæjarstjórnar á fimmtudag.
Um er að ræða tillögu um sjávarbaðstað með aðstöðu til sjósunds og útivistar við Klaufina/Höfðavík í Vestmannaeyjum. Sjávarbaðstaðan mun falla að nærumhverfi og verða í nánum tengslum við náttúru Vestmannaeyja. Markmið tillögunnar er að skapa skemmtilegan áfangastað fyrir bæjarbúa og gesti til útivistar og til að stunda sjóböð. Hugmyndin er að sjávarbaðið og aðstaðan fyrir sjósund verði hluti af gönguleið sem er ætlað að tengja saman helstu sögu- og útsýnisstaði í Vestmannaeyjum. Gert er ráð fyrir að sjávarbaðstaðan verði með laugum á tveimur pöllum (kaldur og heitur pottur), útsýnisstað, sturtu- og búningaaðstöðu og mögulega saunu. Vatnið í laugunum verði upphitaður sjór.
Á fundi sínum þann 28. febrúar sl., ákvað umhverfis- og skipulagsráð að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn leggur til við umhverfis- og framkvæmdasvið að kannaður verði áhugi einkaaðila um sjósundsaðstöðu samkvæmt innsendri tillögu frá Undra ehf.
Bæjarstjórn vísar aðal- og deiliskipulagsvinnu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2023. Þegar kemur að þeirri vinnu í haust þarf að taka ákvörðun um framkvæmdina sjálfa og ákveða hvort eða hvernig skuli skipta verkinu niður verði farið af stað í framkvæmdina.
Tillagan var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum bæjarfulltrúa.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.