Helgina 8. og 9. febrúar verður haldinn svokallaður Kolaportsmarkaður í Höllinni, þar sem fólk getur komið og keypt bæði notaðar og nýjar vörur. Markaðurinn verður opinn frá klukkan 13:00 til 17:00 báða dagana, þannig hægt verður að koma og njóta þess að skoða varning og mannlífið ásamt því að fá sér einn kaffi í Höllinni. Að sögn Daníels Geirs, rekstraraðila Hallarinnar er þetta í fyrsta sinn sem slíkur markaður hefur verið haldinn þar, áður hafa verið haldnir vel lukkaðir handverksmarkaðir og því tilvalið að prófa þetta, enda hafa svokallaðir ,,loppumarkaðir” verið vinsælir um land allt.
Daníel fékk hugmyndina að markaðnum þegar hann fór sjálfur að hugsa um allt dótið sem situr ónotað í geymslu á hans eigin heimili og hugsaði að það væri líklega eins hjá fleirum. Einnig fannst honum þetta tilvalin leið til þess að nýta Höllina þegar rólegra er í tíðinni. Í framhaldinu prófuðu þau að setja upp auglýsingu um Kolaportsmarkað og létu viðbrögðin svo sannarlega ekki á sér standa. Daníel hvetur þá sem hafa áhuga á því að selja varning að hafa samband við Höllina á Facebook eða sent þeim tölvupóst.
,,Fólki er frjálst að selja bæði notaðar og nýjar vörur, en þó ekki veitingar. Fólk hefur nú þegar skráð sig með ýmiss konar vörur, bæði notaðar og nýjar, og verður spennandi að sjá úrvalið þegar allt verður klárt,“ segir Daníel að lokum.
Myndirnar eru frá handverksmarkaðnum sem haldinn var í Höllinni í fyrra
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst