Kristín hjá Deloitte: 44 ára starfsreynsla
6. mars, 2025

Kristín Gunnarsdóttir er Eyjamaðurinn að þessu sinni, en hún er starfsmaður hjá Deloitte þar sem hún hefur starfað í bráðum 44 ár. Kristín hefur margra ára reynslu hjá fyrirtækinu og er sannkölluð fyrirmynd í starfi, þar sem hún hefur ávallt sinnt starfi sínu að mikilli fagmennsku. Er við hæfi að hún sé Eyjamaðurinn í blaði sem helgað er fjármálageiranum. 

Fullt nafn: Kristín Gunnarsdóttir 

Fjölskylda: Maðurinn minn heitir Haraldur Gunnarsson. Ég á þrjú börn og þau heita Hrefna, Eyrún og Gunnar Karl sem er látinn. Svo á ég þrjú barnabörn.  

Hefur þú búið annars staðar en í Eyjum:  Er fædd og uppalin í Reykjavík,  kom til Eyja 1977 og ætlaði að vera í 3 mánuði og er hér enn.  

Hvenæar byrjaðir þú að vinna fyrir Deloitte?  Starfsaldurinn hjá Deloitte er að nálgast 44 ár. 

Hvernig hefur starfið þróast og breyst frá því þú byrjaðir hjá Deloitte og til dagsins í dag?  Það hafa orðið gríðarlegar breytingar á þessum tíma. Við fengum fyrstu tölvuna um 1987 en fram að því var allt skráð á bókunarblöð og sent til Reykjavíkur og þar var  það slegið inn í tölvu.  Öll gögn voru send með pósti, en svo kom faxtækið og það var algjör bylting.  Mér finnst ég reyndar vera 100 ára þegar ég rifja þetta upp,  en undanfarin  ár hafa orðið gríðarlegar framfarir. Allt orðið rafrænt og og auðvelt að eiga við. 

Mottó: Lífið er núna 

Síðasta hámhorfið:  Ekkert 

Uppáhalds hlaðvarp: Eftirmál, Segðu mér og fl. og fl. 

Aðaláhugamál: Fjölskyldan, útivera og lestur góðra bóka. 

Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án: Ganga. Ég setti mér markmið í október 2020 að ganga 100 km á mánuði. Búin að ná því nema í janúar og febrúar þar sem veðrið hefur ekki verið mjög spennandi.   

Hvað óttast þú mest: Ekkert 

Hvaða tónlist kemur þér í gott skap:  Allt nema þungarokk og rapp. 

Hvað er velgengni fyrir þér: Vellíðan í lífi, leik og starfi. 

Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Þeir eru margir, t.d Borgarfjörður eystri, Bled í Slóveníu, Hallstatt í Austurríki og fl. og fl.  

Eitthvað að lokum: Takk fyrir mig!

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst