Kviknaði í um borð í Sigurði

Sigurður VE er nú í viðhaldsstoppi. Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðastjóra Ísfélagsins er skipið í hefðbundnum slipp á Akureyri þar sem ýmisar lagfæringar eru gerðar. Í liðinni viku kviknaði í um borð í skipinu.

„Það varð laus eldur í vélarrúmi skipsins við suðuvinnu í lagnakerfi, en sem betur fer fór slökkvikerfi skipsins í gang og slökkti eldinn áður en skemmdir urðu á búnaði, en einn starfsmaður fékk vott af reykeitrun skilst mér.“

segir Eyþór. Hann segir að meðal verka sem unnin séu er að yfirfara stýrisbúnað og einnig öxuldraga skrúfuásinn.

„Þetta tekur allt lengri tíma en við vonuðumst til, en það er ekki í fyrsta skiptið sem slippvinna dregst eitthvað vegna ófyrirsjánlegra verkefna í undirbúningi slippsins. Við stefnum á að hefja makrílvertíð fljótlega í júlímánuði og frystihúsið í Eyjum opnar 8. júlí til að taka á móti makríl. Vonandi verður Sigurður klár til makrílveiða á þeim tíma.“

Þorgeir Baldursson, ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir af Sigurði í slippnum á Akureyri.

 

Nýjustu fréttir

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.