Landað fyrir árshátíðarferð
Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Þessa dagana eru ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni að landa áður en áhafnir þeirra halda í árshátíðarferð til Póllands. Á fréttasíðu Síldarvinnslunnar er greint frá aflabrögðum þeirra og hvar veitt hefur verið.

Jóhanna Gísladóttir GK landaði á Grundarfirði sl. sunnudag. Aflinn var um 60 tonn, mest þorskur sem fékkst á Strandagrunni. Smári Rúnar Hjálmtýsson skipstjóri sagði að reynt hefði verið að veiða víðar til að blanda aflann en það hefði gengið heldur erfiðlega. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni og er skipið að landa fullfermi af karfa í Hafnarfirði í dag. Karfinn fékkst í Víkurálnum.

Vestmannaey VE landaði fullfermi í heimahöfn í gær. Aflinn var mest ýsa og var víða veitt. Veiðin hófst í Skeiðarárdýpi en síðan var farið á Höfðann, í Breiðamerkurdýpi, í Sláturhúsið, á Kolahrygg og loks endað á Pétursey og Vík. Ávallt var verið að eltast við ýsu og það gekk að fylla skipið en það þurfti þolinmæði til að sögn Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra.

Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær. Aflinn var 90 tonn, mest þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veitt hafi verið frá Tangaflaki og allt suður á Skrúðsgrunn. ”Það var þokkalegasta veður en ýsuveiðin hefði mátt vera meiri. Það reynist mörgum erfitt að eiga við hana,” sagði Þórhallur.

Bergey VE landar fullfermi í Vestmannaeyjum í dag. Aflinn er til helminga þorskur og ýsa og fékkst hann að mestu á Tangaflaki og Gerpisflaki en ein ”skafa” var tekin í Sláturhúsinu og önnur í Reynisdýpi samkvæmt upplýsingum frá Jóni Valgeirssyni skipstjóra. Jón sagði að allan túrinn hefði verið reynt að fá ýsu. ”Það er hundleiðinlegt að eltast við ýsuna um þessar mundir, en það lagast einhvern tímann eins og flest annað,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.