Landaður afli í mars 60 þúsund tonn

Landaður afli í mars var rúm­lega 60 þúsund tonn sem er 77% minna en í mars 2023, að því er fram kem­ur á vef Hag­stofu Íslands. Sam­drátt­ur varð í nær öll­um fisk­teg­und­um.

Mest munar þó um að engin loðna veiddist í mars þetta árið en hún var meginuppistaða af heildaraflanum í mars í fyrra.

Heildarafli á tólf mánaða tímabilinu frá apríl 2023 til mars 2024 var tæplega 1,1 milljón tonn sem er 26% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr. Helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti var engin loðnuveiði.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.