Loðnuleiðangri lokið án árangurs

Heimaey VE er er komin til hafnar í Vestmannaeyjum eftir að hafa lokið loðnuleiðangrinum sem hófst í síðustu viku. Ábending barst um loðnu upp af Víkurál í vikunni en leit þar leiddi ekki í ljós verulegt magn.

“Það var loðna að ganga upp, sennilega úr Víkurálnum, en þetta var ekki magn sem skiptir miklu máli í stóru myndinni, því miður,“ segir Birkir Bárðarson,” leiðangursstjóri loðnuleitar Hafrannsóknastofnunar í samtali við Fiskifréttir.

“Heimaey VE var orðið eitt skipa eftir í loðnuleitinni og kannaði svæðið út af Vestfjörðum undan farna daga. Skipið hafði tekið stefnuna heim á leið þegar ábending um loðnu barst að sögn Birkis frá báti á svæðinu. Því hafi verið ákveðið að snúa Heimaey við og leita á svæðinu upp af Víkurál.

Ekkert að ráði fannst og leiðangrinum er því lokið. „Við förum sennilega yfir það í dag hvort og þá hvað verður gert í framhaldinu,“ segir Birkir. Það yrði þá í áfram í samvinnu við útgerðarfyrirtæki því bæði rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar séu upptekin í öðrum verkefnum. „Þetta veltur mikið á því hvað útgerðirnar geta gert.“

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.