Margfaldur Íslandsmeistari í pílu með námskeið fyrir konur
Ingibjörg Magnúsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í pílukasti.

Laugardaginn 24. maí næstkomandi mætir Ingibjörg Magnúsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í pílu til Eyja og verður með námskeið fyrir konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í pílukasti. Ingibjörg er með áralanga reynslu í íþróttinni, bæði sem keppandi og þjálfari, og hefur meðal annars keppt við stór nöfn á borð við Fallon Sherrock. Auk námskeiðsins mun Ingibjörg vera viðstödd æfingu ungmenna og veita þeim hagnýt ráð. 

Viðburðurinn er hluti af DigiDarts, alþjóðlegu samstarfsverkefni fimm þjóða – Austurríkis, Íslands, Rúmeníu, Ungverjalands og Tyrklands – sem hefur það að markmiði að efla þátttöku kvenna, barna og fatlaðra í pílukasti. Verkefnið er að hluta styrkt af Evrópusambandinu.

Námskeiðið fer fram kl 19:30-21:30 í pílusal Vestmannaeyja. 

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.