Mikil áhersla lögð á blandaðan afla

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum í á miðvikudag. Afli beggja var blandaður en mest af ýsu. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri skipanna, segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að um þessar mundir sé mikil áhersla lögð á blandaðan afla en auðveldast sé að sækja ýsuna og þess vegna sé gjarnan mest af henni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að túrinn hafi gengið þokkalega. „Við byrjuðum á Stórhöfðahrygg en þar var heldur rólegt. Þá var haldið á Meðallandsbugt í ýsukropp og síðan á Ingólfshöfða í þorsknudd. Því næst lá leiðin á Mýragrunn og þar fékkst blandaður afli og þar var fyllt. Veðrið var fínt allan túrinn. Eitt helsta vandamál okkar um þessar mundir er að sneiða hjá ýsunni. Hún er víða blessunin,“ segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þeir hafi veitt víða. „Þetta var verulegur þvælingur á okkur í þessum túr, alveg frá Eyjum og austur í Breiðamerkurdýpi. Allan tímann var verið að reyna að fá eitthvað annað en ýsu því það er býsna mikið af henni. Þetta tókst bærilega en oft höfum við fengið í skipið á styttri tíma,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.