Möguleg loðnuganga suðaustur af landinu
lodna_mid_op
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Síðastliðna viku hefur mælst afar lítið af loðnu í annarri yfirferð loðnumælinga á árinu en með það að markmiði að vakta loðnumiðin tóku íslensk uppsjávarveiðiskip að sér að sigla eftir ákveðum leiðarlínum til og frá kolmunnaveiðum suður af Færeyjum.

Það bar árangur strax á fyrsta degi þegar Svanur RE rakst á torfur suðaustur af landinu í gær 13. febrúar á suður hluta Rauðatorgsins. Veiðiskipin Hákon EA og Hoffell SU fóru um kvöldið 10 sjómílur sunnan og norðan við það svæði og urðu einnig vör við lóðningar. Ekki reyndist veður fyrir þau til að taka sýni til að fá úr því skorið hvort um væri að ræða loðnu, en það þykir líklegra heldur en að þetta sé síld. Vænta má upplýsinga frá fleiri veiðiskipum næstu daga, segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er við sjórannsóknir á svipuðum slóðum og mun því gera stutt hlé á þeim til að fara til að magnmæla og taka sýni úr því sem líkur eru á að sé loðnuganga. Jafnframt hélt uppsjávarveiðiskipið Polar Ammassak áleiðis þangað í gærkvöldi frá Vestfjarðamiðum þar sem skipið hafði verið við loðnumælingar. Gert er ráð fyrir að mælingar skipanna geti hafist í kvöld og geti staðið yfir í tvo til þrjá daga.

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.