Neyðarkall úr Eyjum
Hallgrímur Steinsson

Aðsend grein

Hallgrímur Steinsson

Vestmanneyingar eru seinþreyttir til vandræða, það þykir ekki gott að kvarta.  Nú er hins vegar komin upp staða varðandi samgöngur í Eyjum sem er óþolandi.  Þetta er eitthvað í ætt við að svelta mjólkurkúna, hugbúnaðarfyrirtæki að borga ekki símareikninginn eða útgerðarmann sem kaupir ekki olíu á skipin.  Vestmannaeyjar eru nefnilega einn af máttarstólpum Íslands í verðmætasköpun og er yfirstandandi gríðarlegt tjón af völdum sinnuleysis hjá stjórnvöldum í samgöngumálum.

Loforð og raunveruleiki

Verðmætasköpunin í Eyjum er víða: sjávarútvegur, fiskeldi og ferðaþjónusta eru helstu greinarnar.  Hvernig eiga þessar greinar að lifa við það að nánast engar samgöngur séu við Eyjuna?  Þegar Landeyjahöfn var byggð var lagt upp með að höfnin yrði opin í um 300 daga á ári með réttu skipi.  Skipið kom miklu seinna og var þá reynt á gæði hafnarinnar.  Nú er komin margra ára reynsla á höfnina og kemur í ljós að hún er ekki að skila nálægt því sem okkur var lofað og skipið eingöngu búið að sigla fáeina daga í Landeyjahöfn á þessu ári.

Afleiðingar fyrir atvinnulíf og samfélag

Vegagerðin sló á sínum tíma út af borðinu hugmyndir um göng og valdi stað fyrir höfnina sem hefur reynst erfitt að halda opinni vegna sandburðar.  Nú síðasta dæmið í sorgarsögu samgangna í Eyjum undanfarin ár er að önnur af skrúfum Herjólfs er óvirk vegna þess að ekki voru til varahlutir sem fyrirsjáanlega hefðu átt að teljast nauðsynlegir.  Þetta gerir að verkum að daglega verða fyrirtæki og fólk í Eyjum skert af þjónustu sem er nauðsynleg forsenda fyrir búsetu og starfsemi í Vestmannaeyjum.

Íbúar í Vestmannaeyjum hafa kerfisbundið verið skertir af þjónustu á undanförnum árum þar sem góðar samgöngur hafa verið lagðar til grundvallar, t.d. í heilbrigðisþjónustu þar sem engin skurðstofa er rekin sem fyrirbyggir fæðingarþjónustu.  Ungt fólk í barneignarhugleiðingum og fólk sem þarf að sækja læknishjálp hefur enga aðra kosti þessa dagana en að leggja á sig 4 tíma Herjólfsferð í hvora áttina til að sækja nauðsynlega þjónustu. Ef það á að rökstyðja minni þjónustu með samgöngum verða þær að vera í lagi.

Töpuð tækifæri

Það er erfitt að mæla töpuð tækifæri og skaða af völdum þjónustuleysis. Þegar útflytjendur mæta skorðum í flutningi og öflugt vinnandi fólk kemst ekki leiðar sinnar er skaði skeður.  Það er ekki sæmandi Íslendingum að skilja Eyjamenn eftir með þessum hætti og tapið er ekki bara í Eyjum.  Töpuðu tækifærin myndu greiða margfalt til baka þann aukakostnað sem ríkið þyrfti að bera af því að standa vel að hlutum í samgöngum við Eyjar.  Hver er lausnin?  Eðlilegasta lausnin er að Vegagerðin efni loforð sitt um 300 daga á ári með umbótum á Landeyjahöfn og sterkara utanumhaldi um rekstur skipsins, t.d. varahlutaeign. Mjólkurkúin skilar engu nema henni sé sinnt.

 

Hallgrímur Steinsson

Vélstjóri og rekstrarstjóri

 

Nýjustu fréttir

Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Kristmundur Axel kemur fram á Þjóðhátíð
Óskar Jósúason í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.