Nýjan Herjólf, lægri gjaldskrá og eðlilegar jarðgangarannsóknir

Gossagan, jarðfræðin og náttúrufegurð skapa þar þá veröld að í reynd ætti enginn erlendur ferðamaður að sleppa Eyjum úr ferð sinni um landið. �?að gera þó margir þeirra í dag og kemur þar tvennt til.
Annars vegar lélegt flugveður og hins vegar vont sjóveður. �?á er bílaþilfar Herjólfs upppantað marga mánuði fram í tímann. Með bættum samgöngum eiga Vestmannaeyjar gríðarlega framtíð fyrir sér en til þess að svo geti orðið þurfa ferðamálayfirvöld landsins að taka undir með heimamönnum í markaðssetningu og samgöngumálunum. Eyjarnar eiga það inni
�?egar býsnast er yfir miklum kostnaði, gleymist í umræðunni að Vestmannaeyjar, sem ein stærsta verstöð landsins, á gríðarlega stóran þátt í þeirri velmegun sem Íslendingar búa við í dag. Á þeim tíma, þegar þjóðin braust frá sárri fátækt til bjargálna, lögðu verstöðvar á borð við Vestmannaeyjar grundvöllinn undir þjóðarbúið. Nú er komið að íslenskri þjóð að endurgreiða þá skuld og enn sem fyrr munu Eyjarnar góðu greiða þá fjárfestingu margfaldlega til baka.
Byrjum á ferjunni. �?ví fer fjarri að bílaþilfar núverandi Herjólfs anni samgöngum milli lands og Eyja og skip þetta svarar heldur ekki kröfum samtímans um siglingahraða. Ferðin tekur góða þrjá tíma en það er vel mögulegt að stytta ferðatímann í tvo.
Í umræðu um samgöngumál Eyjamanna hafa núverandi samgönguyfirvöld látið hrekja sig til, án þess að ljúka nokkru máli farsællega. Rætt hefur verið um nýjan Herjólf en tillögum þar um síðan stungið undir stól og bæjaryfirvöldum svarað því máli með óskiljanlegum hætti.

Jarðgöng gætu verið ódýrasta leiðin
�?egar rætt hefur verið um framtíðarsamgöngur við Vestmannaeyjar er því líkast sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sé fyrirfram ákveðinn í að ekki megi einu sinni kanna málið til hlítar. �?að er umhugsunarefni hvort flokksbræðrum Árna Johnsen sé svona mikið í mun að gera ekki það sem Eyjamaðurinn söngelski leggur til. �?egar svo er komið er brýnt að aðrir taki við keflinu.
Rannsóknir á möguleikum á jarðgangagerð hafa strandað í miðju kafi og sumar verið unnar með hangandi hendi. Slett er inn fráleitum tölum um kostnað sem miða meðal annars við gangagerð eins og þá sem þarf fyrir milljónaborgir.
Eitt það mikilvægasta í jarðgangaumræðunni er þetta: �?að er möguleiki að jarðgangagerð sé framkvæmanleg fyrir sama fé og kostar að halda úti siglingum til Eyja í aldarfjórðung eða innan við 30 milljarða króna. Ef það er tilfellið er ekki áhorfsmál að leggja göngin. �?au munu margborga sig fyrir þjóðarbúið og stórefla byggð bæði í Eyjum og Rangárþingi. Ef göngin kosta miklu meira en það þá verður að leggja gangagerð á hilluna um sinn og horfa til annarra leiða. Við þær aðstæður er Bakkafjöruhöfn vænlegasti kosturinn.

Bakkafjöruhöfn notuð til að tefja
En í stað þess að ljúka þessum rannsóknum reynir núverandi samgönguráðherra að slá á jarðgangaumræðuna með frekar flausturslegri ákvörðun um Bakkafjöru. �?að er góðra gjalda vert að vilja með þeim hætti koma til móts við samgönguþarfir Eyjamanna en mér býður í grun að þetta sé leikur í óformlegu stríði Sturlu Böðvarssonar við jarðgangahugmyndina og fyrrnefnt þingmannsefni Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. �?að er eitthvað í undirstöðu þessa máls sem lyktar undarlega.
Ef Bakkafjöruhöfn á að fylgja sá böggull að fram að opnun ferjulægis, sem verður í fyrsta lagi 2011, skuli Eyjamenn notast við gamla Herjólf þá er það algerlega óviðunandi staða. Eyjamenn eiga kröfu á að fá strax í sumar nýjan og hraðskreiðari Herjólf. Málið má leysa hratt og örugglega með leiguskipi en til þess þarf pólitískan vilja.

Lækkun fargjalda
Að lokum skal hér nefnt viljaleysi samgönguráðherra í gjaldskrármálum Herjólfs. Sem þingmannsefni í kjördæminu hef ég farið oftar út í Eyjarnar fögru í vetur en áður samanlagt á ævinni og kynnst gjaldskrám Herjólfs. Hef að vísu í öllum ferðum sparað mér að taka bílinn með en borgað nóg samt. �?að er lágmarkskrafa að ferðalag með Herjólfi kosti fjölskylduna ekki meira en sem nemur kostnaði við að aka frá �?orlákshöfn austur í Vík en nú er kostnaðurinn margfaldur. Um þetta gildir hið sama og nýjan Herjólf. Hér þarf pólitískan vilja og sá vilji er til innan Framsóknarflokksins.

Höfundur er bóksali á Selfossi og skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.

Nýjustu fréttir

Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.