Á morgun hefur starfsemi í Vestmannaeyjum nýtt fyrirtæki í ferðaþjónustu en um er að ræða svokallaðan “hop on, hop off” strætó. Þar er á ferðinni rúta sem keyrir fyrir fram ákveðna leið eftir tímatöflu sem sjá má hér að neðan.
Það er Eyjamaðurinn Sindri Ólafsson sem stendur að þessu skemmtilega verkefni.
„Ég hef verið með annan fótinn í ferðaþjónustu síðustu átta sumrin, lengst af sem leiðsögumaður í bátum, rútum eða gangandi. Algengasta spurningin sem ég fæ í almennu spjalli við ferðamenn er: hvernig kemst ég út í Stórhöfða?, þar stuttu á eftir er spurningin hvernig kemst ég inn í Herjólfsdal? Þessar spurningar eru ekki úr lausu lofti gripnar því þetta eru þeir staðir sem réttilega eru uppgefnir í kynningarefni um Vestmannaeyjar sem líklegustu staðirnir til að sjá lunda.”
Sindri segist hafa fengið góðar viðtökur við þessu uppátæki en hugmyndin sé ekki ný af nálinni.
„Allstaðar sem ég hef farið síðustu daga að kynna þetta fyrir hagsmunaaðilum hefur viðmótið verið gott. Fólk hefur tekið þessu fagnandi og flestir bætt við, “Ég skil ekki afhverju þetta er ekki löngu komið í Eyjum.”
Þeir sem vilja nálgast frekari upplýsingar um verkefnið geta fundið þær á heimasíðu fyrirtækisins hopon.is.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst