Ofríki eftir Jón Hjartarson
Fyrir liðlega einni öld gerði bóndinn á Randversstöðum í Breiðdal uppreisn gegn yfirvöldum í Breiðdalshreppi. Ástæðan var sú að yfirvöldin komu í veg fyrir að geðsjúk eiginkona hans fengi að leita sér lækninga og reyndu í framhaldinu að bola honum burt úr héraðinu. Ofríki er mögnuð saga frá umbrotaskeiði í lífi þjóðarinnar þegar hillir undir nýja tíma og ný viðhorf, meðal annars með stofnun Kleppsspítala í Reykjavík, en framkoma við fátæklinga ræðst þó enn af gamalgróinni vinnukergju stórbænda, þar sem smælingjarnir mega sín lítils gagnvart ofríkinu.
Barátta �?lafs Ásgrímssonar er merkileg fyrir þær sakir að hann veitti yfirvöldunum svo harðsnúið viðnám að þau þurftu að beita öllum tiltækum lagakrókum til að koma honum undir, eins og lesa má í þeim 140 málsskjölum sem lögð voru fyrir sýslumann Vestur -Skaftafellssýslu til úrskurðar 1918.
�?að var fáheyrt að fátækur alþýðumaður risi upp gegn yfirvöldunum. Sama áræðni og kjarkur fylgdi fjölskyldunni áfram og reyndist henni bjargvættur þegar þrítugan hamarinn var að klífa eins og sagt er frá í bókinni.
Ofríki er fjórða bók höfundar en fyrri bækur hans um uppvöxt í Strandasýslu og síldarár á Raufarhöfn sem komu út 2010 og 2011 hlutu góða dóma. 2013 sendu Jón og sonardóttir hans Ása �?lafsdóttir frá sér ævintýrabókina Allskonar sögur sem er fyrir börn á öllum aldri.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.