Olga áfram með ÍBV
Olga Sevcova í leik með ÍBV. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Lettneska knattspyrnukonan Olga Sevcova hefur ákveðið að framlengja dvöl sína í Vestmannaeyjum um eitt ár í það minnsta og halda áfram að spila með ÍBV. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins.

Þegar Olga kom fyrst til landsins og gekk í raðir ÍBV árið 2020 þá gerði hún samning út það keppnistímabil, fáir hefðu því giskað á að hún væri enn hjá félaginu nú 5 árum seinna að framlengja samning sinn.

Olga er löngu orðin þekkt í Vestmannaeyjum og á Íslandi fyrir gæðin sem hún býr yfir og sýnir inni á fótboltavellinum. Þessi 33 ára knattspyrnukona hefur nú flutt fjölskyldu sína til Eyja og eru þau orðin fyrir löngu hluti af ÍBV-fjölskyldunni í Vestmannaeyjum.

Hún hefur leikið við góðan orðstír allt frá komu hennar til landsins en auk þess að leika með ÍBV lék hún í nokkra mánuði á láni hjá Fenerbahce og leikur reglulega með lettneska landsliðinu þar sem hún hefur 8 sinnum verið valin leikmaður ársins.

Í ár hefur Olga verið einn besti leikmaður Lengjudeildar kvenna en hún hefur skorað 14 mörk í 17 leikjum, auk þriggja marka í Mjólkurbikarnum. Þá hefur Olga einnig komið að öðrum tíu mörkum.

Knattspyrnuráð er ánægt með að Olga hafi valið að leika með ÍBV áfram á næstu leiktíð, segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.