Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Mynd/úr safni.

Ákveðið hefur verið að prófkjör Sjálfstæðisflokksins, vegna uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí, verði haldið föstudaginn 13. mars nk. Kjörstaður verður í Ásgarði og þar mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla einnig fara fram dagana fyrir prófkjörsdaginn. Opnunartími verður auglýsur sérstaklega þegar nær dregur.

Þeir sem áhuga hafa á að taka virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og hafa áhuga á rekstri bæjarfélagsins og mótun þess í nútíð og framtíð eru hvattir til að gefa kost á sér í prófkjörinu. Allir flokksbundnir sjálfstæðismenn, búsettir í Vestmannaeyjum og kjörgengir í næstu kosningum geta boðið sig fram.

Framboðsfrestur er til kl. 18:00 föstudaginn  27. febrúar nk. og er framboðum skilað rafrænt á mínum síðum xd.is.

Allar nánari upplýsingar varðandi framboð og framkvæmd prófkjörs er að finna á auglýsingum á netmiðlum blaðanna sem gefin eru út í Eyjum en auk þess má finna ítarlegar upplýsingar á þessum hlekk https://xd.is/profkjor-vestmannaeyjum-13-mars/

Við hvetjum áhugsasamt fólk á öllum aldri til að kynna sér prófkjörið og gefa kost á sér til kjörs í því.

Kjörnefnd vegna prófkjörsins skipa: Grímur Gíslason, formaður, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Sigurbergur Ármannsson, Theodora Ágústsdóttir, Arndís Bára Ingimarsdóttir, Herdís Hermannsdóttir og Thelma Hrund Kristjánsdóttir.

 

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

 

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.