Róbert áfram hjá ÍBV
Vilmar og Róbert ljósmynd: ÍBV
Þó ekki meigi spila handbolta um þessar mundir þá halda forsvarsmenn ÍBV ótrauðir áfram að undirbúa næsta tímabil og sögðu frá því á facebook síðu handboltans að Róbert Sigurðarson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild ÍBV.
Róbert er á sínu fjórða tímabili hjá ÍBV en hann kom til liðs við liðið frá Akureyri árið 2017. Róbert hefur verið algjör lykilmaður í varnarleik liðsins undanfarin ár og hefur stimplað sig vel inn hérna í Eyjum. Undanfarin ár hefur hann sýnt það og sannað að hann er einn albesti varnarmaður Olís-deildar karla. “Við erum mjög ánægð með að tryggja okkur krafta Róberts áfram og er þetta mikilvægur þáttur í að gera allt klárt fyrir átökin næstu ár.
Við óskum Róberti til hamingju og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,” segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.