Selfyssingar náðu loksins sigri á ÍR-ingum í þriðju viðureign liðanna í 1. deild karla í vetur. Mjótt var á mununum en Selfyssingar unnu að lokum með einu marki, 31-32.
Leikurinn byrjaði rólega en ÍR-ingar höfðu undirtökin framan af og náðu mest þriggja marka forskoti. Selfyssingar komu til baka og minnkuðu muninn í 18-17 fyrir leikhlé.