Samband íslenskra sveitarfélaga vísar á bug fullyrðinum BSRB um launamisrétti

Samningarfundum BSRB og Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur til þessa ekki skilað árangri.

Í tilkynningu frá SÍS kemur fram að félagið vísar alfarið á bug fullyrðingum BSRB um meint misrétti í launum milli starfsfólks sem vinnur sömu störf. Sveitarfélögin eru leiðandi á íslenskum vinnumarkaði í baráttunni við kynbundin launamun og vinna markvisst að því að gæta jafnræðis í launum starfsfólks sveitarfélaga í sömu og/eða jafnverðmætum störfum.

BSRB hafnaði tilboði sambandsins árið 2020 um launahækkanir frá 1. janúar 2023 sem tryggt hefðu sömu laun fyrir sömu störf hjá sveitarfélögum frá 1. janúar 2023. Það tilboð sveitarfélaganna hafði legið á borðinu í sex mánuði og var efnislega það sama og Starfsgreinasambandið hafði skrifað undir í byrjun árs 2020, eða heilum tveimur mánuðum áður en BSRB skrifaði undir sinn samning.

Nú sækir BSRB leiðréttingu á mistökum sínum af mikilli hörku á sveitarfélögin með víðtækum verkfallsaðgerðum og ásökunum um að sveitarfélög mismuni starfsfólki í launum. Starfsfólki er talin trú um að vinnuveitendur þeirra mismuni þeim og sýni lítilsvirðingu. Sveitarfélögin eru útmáluð í afar ódrengilegri auglýsingaherferð sem slæmir vinnuveitendur. Ekkert er fjarri sanni. BSRB ber ábyrgð á þessari stöðu og forystufólk félagsins verður að taka ábyrgð á þeim samningum sem það skrifaði undir fyrir hönd síns félagsfólks.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.