Samgöngumál til umfjöllunar í bæjarráði
Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf
Frá Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja fjallaði á fundi sínum í liðinni viku um stöðu samgöngumála, þar á meðal rekstur Herjólfs, flugáætlun og dýpkunarmál í Landeyjahöfn.

Áætlunarflug hefst um mánaðarmótin

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, kynnti drög að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026. Gert er ráð fyrir tæplega 22 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu á næsta ári. Á fundinum kom jafnframt fram að áætlað er að Herjólfur sigli átta ferðir á dag næsta sumar, frá 5. júní til 23. ágúst.

Flugsamgöngur milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur hefjast svo á ný 1. desember. Samkvæmt Norlandair verður ein ferð flogin á föstudögum, sunnudögum og mánudögum og tvær ferðir á fimmtudögum. Bæjarráð segir það ánægjulegt að flugsamgöngur séu að hefjast á ný en telur þriggja mánaða samningstímabil of stutt og hefur gert athugasemdir við það við Vegagerðina.

Krefjast fullnýtingar dýpkunartækja og breyttra útboðsskilyrða

Bæjarstjóri gerði ráðinu grein fyrir nýlegum fundi með Vegagerðinni um stöðu dýpkunar í Landeyjahöfn. Þar kom fram að óásættanlegt sé að ekki sé dýpkað þegar færi gefst, enda valdi það verulegri þjónustuskerðingu þegar siglt er eftir sjávarföllum. Bæjarráð ítrekar að nýta verði hvern einasta klukkutíma sem fæst til dýpkunar og bendir á að það hafi ekki gengið nægilega vel undanfarið.

Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á breyttar forsendur í fyrirliggjandi útboði vegna dýpkunar. Ráðið vill að fjárhagslegt vægi verði mest 60% og tæknileg geta minnst 40%, í stað þess sem nú gildir þar sem fjárhagslegt vægi er 75% en tæknilegt aðeins 25%. Ráðið skorar á ráðherra og þingmenn Suðurkjördæmis að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að hægt sé að breyta forsendunum og auka líkur á að fleiri aðilar geti boðið í verkið.

Nýjustu fréttir

ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.