Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna gengur vel

Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna var til umræðu á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs í liðinni viku. Umsjónarfélagsráðgjafi fór yfir stöðuna. Vestmannaeyjabær er að hefja sitt þriðja ár í að vinna eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna en opnað var fyrir umsóknir í byrjun árs 2022. Innleiðing hefur gengið vel. Heildarfjöldi mála eru um 140 sem er um 15,5% barna í sveitarfélaginu. Um 65% mála eru svokölluð 1. stigs mál sem eru vægustu málin. Um 34% eru 2. stigs mál og 1% 3. stigs mál. Stærsti hluti barnanna eru á yngsta stigi grunnskóla. Nokkur færsla er á málum milli stiga eða mál lokað. Vestmannaeyjabær er eitt af frumkvöðlasveitarfélögum varðandi innleiðingu á umræddum lögum.

Nýjustu fréttir

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.