Seðlabankinn - Örlítið skref og varfærið
Seðlabankinn stígur varlega til jarðar.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands ákvað í dag að lækka stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Þetta er í fyrsta sinn síðan í nóv­em­ber árið 2020 sem Seðlabank­inn lækk­ar vext­ina og eru meg­in­vext­ir bank­ans  núna 9%. Hafa verið 9,25 frá því í ágúst á síðasta ári. Ástæðan er m.a. minni verðbólga sem mældist 5,4% í síðasta mánuði. Lítið skref og jákvætt en Seðlabankinn vill fara hægt í sakirnar.

„Áfram virðist hægja á efna­hags­um­svif­um í takt við aukið pen­inga­legt taum­hald. Þá eru vís­bend­ing­ar um að dregið hafi úr spennu á vinnu­markaði og svart­sýni heim­ila og fyr­ir­tækja hef­ur auk­ist,“ segir í tilkynningu bankans og er hvatt til varkárni. Áfram þurfi að viðhalda hæfi­legu aðhalds­stigi til þess að koma verðbólgu í mark­mið inn­an ásætt­an­legs tíma.

Í síðasta mánuði hækkuðu stóru bankarnir vexti sína sem ekki er til að létta róður skuldsettra heimila en til mikils er að vinna, að ná tökum á verðbólgu og að vextir lækki. Er það ein forsendan fyrir kjarasamningunum í mars á þessu ári.

Lækkun skiptir máli

„Þá er komið að lið sem skiptir mestu, sem er lækkun verðbólgu og stýrivaxta og verður helsta kjarabótin gangi hún eftir,“ sagði í viðtali í Eyjafréttum við Arnar Hjaltalín, formann Drífanda stéttarfélags um samningana í mars.

„Sem dæmi má nefna að lækkun vaxta um 1 prósent á 25 milljón króna láni skilar rúmum 400.000 krónum á ári beint í vasann. Verði lækkunin 2,5% losar það rúma milljón sem sýnir að til mikils er að vinna. Af 33 milljóna króna láni eru samsvarandi kjarabætur liðlega 530.000 krónur upp í 1.329.000 krónur.“

Þetta sýnir að hvert skref niður á við skiptir máli.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.