Sísí Lára klárar tímabilið með ÍBV

ÍBV hefur á síðustu vikum borist liðsstyrkur fyrir lokakaflann í Bestu deild kvenna í knattspyrnu en liðið stendur í ströngu þar, segir í frétt á heimasíðu ÍBV.

Leiknar verða 18 umferðir áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri helming, í þeim efri eru leiknar fimm umferðir en þrjár í neðri. ÍBV er sem stendur í 8. sæti deildarinnar með 17 stig.

Leikmennirnir sem um ræðir koma úr ýmsum áttum og léku allar með liðinu í gær í sigrinum gegn Keflavík. Chloe Hennigan kemur frá írska liðinu Treaty United sem leikur í efstu deild þar í landi. Hún hafði leikið vel með írska liðinu á tímabilinu og spilað alla leiki deildarinnar áður en gert var hlé á deildinni vegna HM, þar sem Írar voru með lið. Hún er 22 ára varnarmaður.

Hinir tveir leikmennirnir eru Vestmannaeyingar en Helena Hekla Hlynsdóttir kom til ÍBV frá Selfossi þar sem hún hefur leikið frá árinu 2017 fyrir utan tímabilið 2018 þar sem hún lék með ÍBV, við bjóðum hana því velkomna aftur. Samtals átti Hekla 15 leiki í efstu deild fyrir vistaskiptin en hún lék sinn 16. í gær þar sem hún átti flottan leik gegn Keflvíkingum. Hún getur leikið þó nokkrar stöður á vellinum en lék í hægri bakverði í gær.

Þá hefur Sigríður Lára Garðarsdóttir ákveðið að ljúka tímabilinu með ÍBV en hún hætti fótboltaiðkun fyrr á árinu, það eru mjög ánægjulegar fréttir fyrir ÍBV og Bestu deildina að Sísí hafi ákveðið að taka skóna af hillunni til að hjálpa ÍBV á lokasprettinum í deildinni. Sísí þarf varla að kynna en hún er einn besti leikmaður sem ÍBV hefur alið af sér, hún á 20 A-landsleiki og 297 leiki á vegum KSÍ, þar af 167 í efstu deild kvenna.

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.