Sjö til viðbótar greinast smitaðir

Sjö einstaklingar til viðbótar hafa verið greindir með COVID-19 og er fjöldi smitaðra orðinn 102 í Vestmannaeyjum. Fjórir þeirra voru þegar í sóttkví. Enn fjölgar í hópi þeirra sem hafa náð bata og eru þeir orðnir 17. Í dag eru 211 einstaklingar í sóttkví. Enn vantar niðurstöður vegna einhverra sýna frá Íslenskri erfðagreiningu en von er á þeim á morgun. Frá upphafi hafa 53% greindra einstaklinga verið í sóttkví af þeim sem greindir hafa verið í Vestmannaeyjum.

Enn er brýnt fyrir Eyjamönnum að fara að öllum reglum. Þá er því beint til fólks að senda aðeins einn fjölskyldumeðlim í matvöruverslanir til að takmarka fjölda þeirra sem þar ganga um. Þá er minnt á þá reglu sóttvarnalæknis að allt íþróttastarf er óheimilt vegna sérstakrar smithættu.

Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.