Sjómannahelgin í máli og myndum

Sjómannahelgin var öll hin glæsilegasta um liðna helgi. Dagskráin hófst á fimmtudaginn síðasta og kláraðist á sunnudaginn. Margt var um manninn og var veðrið gott alla helgina. Óskar Pétur Friðriksson var á myndavélinni alla helgina og myndaði fyrir Eyjafréttir.

Á fimmtudeginum fór sjómannabjórinn á The Brothers Brewery í sölu en bjórinn í ár var til heiðurs Bedda heitnum á Glófaxa. Um kvöldið var Rokkað til heiðurs sjómönnum í Höllinni og hljómsveitin Hjálmar var með tónleika í Alþýðuhúsinu.

Laugardagur
Á laugardeginum var eins og áður sjómannaför niður við bryggju. Þar var margt um manninn og mikið í boði eins og til dæmis, kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur fyrir krakkana. Risa sundlaug með fjarstýrðum bátum.  Kjörís var á bryggjunni að gefa ís og kynna nýjungar. SS mætti og grillaði pulsur fyrir alla þá sem vildu.

Um kvöldið var svo hátíðarsamkoma Sjómannadagsráðs, Hallarinnar og Einsa Kalda.  Veislustjóri kvöldsins var Gísli Einarsson. Þeir sem stigu á svið um kvöldið var Jónsi í Svörtum fötum, Stebbi Hilmars og Sara Renee. Leó Snær greip í gítarinn og hitaði fólk upp fyrir ballið sem var í höndum Stuðlabandsins og spiluðu þeir langt fram á nótt.

Verðandi heiðraði Gísla Val Einarsson. Jötunn heiðraði Halldór Björgvinsson og Vélstjórafélagið heiðraði Gunnar Marel Tryggvason.

Sunnudagur
Á sjálfan Sjómannadaginn byrjaði dagskráin dagsins í Landakirkju með Sjómannamessu. Eykindilskonur voru með kaffisamsæti í Akóges.
Klunna þrjú hófst svo dagskráin á Stakkagerðistúni eins og áður. Þar voru veitt verðlaun fyrir keppnir laugardagsins, sjómenn heiðraðir og vel valdir ræðumenn sögðu nokkur orð.

Verðandi heiðraði Gísla Val Einarsson. Jötunn heiðraði Halldór Björgvinsson og Vélstjórafélagið heiðraði Gunnar Marel Tryggvason.

 

 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.