Skiptu með sér stigunum í botnbaráttunni

ÍBV tók á móti Víkingi frá Reykjavík í botnbaráttuleik í Pepsi-deild karla í dag.

Geof­frey Castilli­on kom Vík­ing­um yfir á sjö­undu mín­útu. Sindri Snær Magnússon jafnaði hins vegar fyrir ÍBV á 26. mín­útu eft­ir fyr­ir­gjöf Kaj Leo í Bartals­stovu.

Liðin sóttu á víxl og fengu bæði ágætis færi en hvorugu liðinu tókst að skora. Þau fá því sitt hvort stigið í botnbaráttuna.

Vík­ing­ur situr því áfram í tí­unda sæti, nú fimm stig­um á und­an Fjölni sem er í fallsæti. ÍBV er með tólf stig í átt­unda sæti.

Þrjár umferðir eru eftir og níu stig í pottinum er því ljóst að enn getur allt gerst á botninum. Keflavík er hins vegar kolfallið með aðeins 4 stig. Fjölnir, Víkingur R, Fylkir, ÍBV, Grindavík og KA geta þó öll fallið ef stigin verða ekki fleiri.

Næstu leikir ÍBV eru gegn toppliði Vals, Stjörnunni sem er stigi á eftir Val í toppbaráttunni og Grindavík sem er einu stigi og einu sæti ofar en ÍBV á töflunni.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.