Snertilaust bókasafn

Bókasafn Vestmannaeyja hefur ekki lokað heldur lánar enn þá út bækur, snertilaust að sjálfsögðu. “Bækur eru hinn besti félagsskapur og hægt er að panta bækur í gegnum síma (488-2040) eða messenger og við reddum málunum,” segir á facebook síður safnsins.

Þær bækur sem skilað er fara í “sóttkví” í 4 daga áður en þær fara aftur í útlán, sprittaðar og fínar. Allar bækur eru sprittaðar áður en þær fara hér úr húsi, starfsfólk er nánast marinerað í spíra og snertifletir sótthreinsaðir reglulega.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á facebook síðu safnsins um útlán og titla í boði. Þar má einnig finna skemmtileg myndbönd sem starfsfólk safnsins hefur verið að útbúa í einmanaleika sínum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.