Guðný Bogadóttir yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu HSU í Vestmannaeyjum sendi okkur þessar upplýsingar um gang mála í bólusetningum í Vestmannaeyjum. Í síðustu viku var verið að bólusetja grunnskólabörn, fólk í elstu aldurshópum, skjólstæðinga dagdvalar og heimahjúkrunar og boðið upp á örvunarskammta handa þeim sem fengið hafa Janssen eða einungis fengið 1 bólusetningu með pfizer eða Astra Zenica.
Ekki eru áætlaðar hópbólusetningar næstu 2 vikur. Ef einstaklingar óska eftir bólusetningu fyrir þann tíma, til dæmis börn sem gátu ekki mætt í bólusetningar í síðustu viku, fólk sem á eftir að fá seinni örvunarskammt eða af öðrum orsökum, þá er þeim bent á að hafa samband við heilsugæslu, sími 4322500 og láta vita af sér og mun heilsugæslan reyna að koma á móts við óskir þessara einstaklinga.
Til upplýsinga þá þurfa að líða 3 mánuðir frá því að einstaklingur fær covid og þar til hann fær örvunarskammt. Þrír mánuðir þurfa að líða frá seinni bólusetningu með pfizer eða Astra Zenica þar til að einstaklingar 70 ára og eldri fá 3ja örvunarskammt og 6 mánuðir fyrir fólk 60 + og heilbrigðisstarfsfólk. Fólk mun fá boð í bólusetningar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.