Starfslok óbyggðanefndar til meðferðar í þinginu
katrin_jakobs
Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra með Heimklett í bakgrunn, sem ríkið gerði kröfu um að yrði að þjóðlendu. Eyjar.net/TMS

Í gær var lögð fram á Alþingi breytingartillaga við frumvarp til laga um breytingar á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Meðal annars starfslok óbyggðanefndar o.fl.

Tillagan kom fram frá fimm þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þeim Teiti Birni Einarssyni, Jóni Gunnarssyni, Vilhjálmi Árnasyni, Birgi Þórarinssyni og Óla Birni Kárasyni.

Á þingfundi í gær mælti Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra fyr­ir frum­varpi til laga um breyt­ing­ar á lög­um um þjóðlend­ur og ákvörðun marka eign­ar­landa, þjóðlendna og af­rétta og fór fyrsta umræða um málið fram í kjöl­farið. Fram kom í máli Katrínar að gert sé ráð fyr­ir því að leggja niður óbyggðanefnd. Nefndin verði hins veg­ar skipuð ef upp komi mál á næstu þrem­ur árum sem taka þurfi á.

Í greinargerð með frumvarpinu segir: Í 1. tölulið er lagt til að valdsvið óbyggðanefndar verði takmarkað við landsvæði innan meginlandsins og í 3. tölulið er fellt brott ákvæði um málsmeðferð mála sem taka til landsvæða sem eru utan þess svæðis, þ.e. eyjar, sker, drangar o.fl. Hefur breytingin í för með sér að öll yfirstandandi mál sem taka til landsvæða utan meginlandsins falla niður.

https://eyjar.net/kostnadurinn-hleypur-a-milljordum/

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.