Starfsmannaflótti yfirvofandi

Sigurjón Birgisson, aðstoðarvarðstjóri á Litla hrauni og formaður fangavarðafélgs Íslands, segir laun fangavarða og lögreglumanna lengi vel hafa haldist í hendur. �?Á undanförnum áratug höfum við dregist verulega aftur úr lögreglumönnum. Árið 2004 var svo komið að grunnlaun fangavarða voru rúmlega 30 prósentum lægri en laun lögreglumanna og rúmlega 40 prósentum lægri en heildarlaun lögreglumanna. Síðan þá hefur munurinn síst minnkað og líklega aukist,�? segir Sigurjón.

Grunnlaun fangavarða fara meðal annars eftir aldri viðkomandi við starfsbyrjun. Sigurjón segir algeng grunnlaun á bilinu 122 þúsund til 130 þúsund krónur en þar við bætist vaktaálag.

�?að er bullandi óánægja á meðal fangavarða með launin og ekki getum við farið í verkfall þar sem við höfum ekki verkfallsrétt. Enn sem komið er hefur ekki brostið á flótti úr stéttinni en margir hugsa sinn gang og ég reikna fastlega með að svo verði ef launin verða ekki lagfærð. �?að væri hræðilegt fyrir fangelsiskerfið allt, fanga og aðstandendur þeirra, að missa út mikið af reynslumiklu og hæfu fólki vegna þessa. �?að er búið að kynna stöðuna fyrir Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og ég vona að hann geri sér grein fyrir alvarleika málsins,�? segir Sigurjón.

Um 45 manns koma að fangavörslu á Litla hrauni en þar eru rými fyrir 77 fanga.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.