Stoppuðum í 33 eða 34 tíma á miðunum
220223 La Cr
Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í heimahöfn í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður um aflabrögð og veður.

„Þetta var þægilegur sumartúr og auk þess var hann stuttur en við stoppuðum á miðunum í 33 eða 34 tíma og náðum að fylla. Veður var virkilega gott en veitt var á Víkinni. Aflinn var mest þorskur og ýsa og síðan blanda af öðru. Haldið var til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk og nú þurfum við að fá meiri ýsu og þess vegna er siglt austur á grunn,” sagði Birgir Þór. Að yfirstandandi túr loknum er stefnt að því að Vestmannaey fari í slipp til Akureyrar og mun það líklega gerast um næstu helgi.

Nýjustu fréttir

Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum
Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.